Ný sýn hlaut flest atkvæði

Frá kosningavöku Nýrrar sýnar.
Frá kosningavöku Nýrrar sýnar. mbl.is/Guðlaugur Albertsson

N-listi Nýrrar sýnar hlaut flest atkvæði í kosningum til sveit­ar­stjórnar sameinaðs sveit­ar­fé­lags Tálkna­fjarð­ar­hrepps og Vest­ur­byggðar. 

Ný sýn hlaut 377 atkvæði og fær því fjóra menn kjörna í sveitarstjórnina. 

Jenný Lára Magnadóttir Páll Vilhjálmsson og Tryggvi Baldur Bjarnason.
Jenný Lára Magnadóttir Páll Vilhjálmsson og Tryggvi Baldur Bjarnason. mbl.is/Guðlaugur Albertsson

D-listi Sjálfstæðisflokksins og óháðra hlaut 268 atkvæði og fær því þrjá menn kjörna í sveitarstjórnina. Auður seðlar eða ógildir voru 20.

Alls eru 1.001 á kjörskrá í sveitarfélaginu og var kjörsókn því 66,43%. 

Þeir sem voru kjörnir í sveitarstjórn sameinaða sveitarfélagsins eru:

Páll Vilhjálmsson (N)

Friðbjörg Matthíasdóttir (D)

Jenný Lára Magnadóttir (N)

Maggý Hjördís Keransdóttir (D)

Gunnþórunn Bender (N)

Tryggvi B. Bjarnason (N)

Jóhann Örn Hreiðarsson (D)

Á vetingastaðnum Hópið var listi Sjálfstæðismanna og óháðra með kosningavöku.
Á vetingastaðnum Hópið var listi Sjálfstæðismanna og óháðra með kosningavöku. mbl.is/Guðlaugur Albertsson

Niðurstöður kosninga í heimastjórnir

Samhliða því sem kosið var til sveit­ar­stjórnar, voru kosnir full­trúar í fjórar heima­stjórnir, þ.e. fyrir Patreks­fjörð, Tálkna­fjörð, Arnar­fjörð og fyrrum Barða­strand­ar­hrepps og Rauðasands­hrepps, tveir aðal­menn og tveir vara­menn.

Niður­stöður kosn­inga til heima­stjórna voru:

Heimastjórn Patreksfjarðar:

Aðalmenn voru kjörnir:

Rebekka Hilmarsdóttir, 95 atkvæði
Gunnar Sean Eggertsson, 50 atkvæði

Varamenn voru kjörnir:

Sigurjón Páll Hauksson, 16 atkvæði
Sveinn Jóhann Þórðarson, 9 atkvæði

Á kjörskrá á Patreksfirði voru 564. Atkvæði greiddu 232.

Heimastjórn Tálknafjarðar:

Aðalmenn voru kjörnir:

Þór Magnússon, 48 atkvæði
Jónas Snæbjörnsson, 33 atkvæði

Varamenn voru kjörnir:

Jón Aron Benediktsson, 12 atkvæði
Trausti Jón Þór Gíslason, 4 atkvæði

Á kjörskrá á Tálknafjarðar voru 197. Atkvæði greiddu 134.

Heimastjórn Arnarfjarðar:

Aðalmenn voru kjörnir:

Rúnar Örn Gíslason, 31 atkvæði
Valdimar B. Ottósson, 12 atkvæði

Varamenn voru kjörnir:

Jón Þórðarson, 10 atkvæði
Matthías Karl Guðmundsson, 5 atkvæði

Á kjörskrá í Arnarfirði voru 190. Atkvæði greiddu 107.

Heimastjórn fyrrum Barðastrandarhrepps og Rauðasands­hrepps:

Aðalmenn voru kjörnir:

Elín Eyjólfsdóttir, 15 atkvæði
Edda Kristín Eiríksdóttir, 10 atkvæði

Varamenn voru kjörnir:

Þórður Sveinsson, 7 atkvæði
Ástþór Skúlason, 5 atkvæði

Á kjörskrá í fyrrum Barðastrandarhrepp og Rauðasands­hrepp: voru 72. Atkvæði greiddu 49.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert