Kanni heimildir mannréttindaráðs

Ráðhús Reykjavíkur.
Ráðhús Reykjavíkur.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í borgarráði óskuðu eftir því á borgarráðsfundi í gær að borgarlögmaður kannaði heimild mannréttindaráðs til þess að leggja fram og samþykkja tillögur er hafa veruleg áhrif á starfsemi annarra  sviða Reykjavíkurborgar. 

Að sögn Sjálfstæðisflokksins er þetta gert í ljósi þess, að fyrir liggur í mannréttindaráði umdeild tillaga um samskipti trúfélaga og skóla.  Ólíklegt þyki að slík heimild sé til staðar enda eigi ráðið fyrst og fremst að gegna ráðgefandi hlutverki samkvæmt samþykktum Reykjavíkurborgar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert