Réttarhöldin yfir níumenningunum dapurleg

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra.
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra. mbl.is/Árni Sæberg

Forsætisráðherra segir dapurlegt að einu réttarhöldin í tengslum við hrunið sem eitthvað kveði að, séu vegna níumenninganna svokölluðu. Það sé fráleitt að fólkið hafi gegnt einhverju lykilhlutverki í því erfiða ástandi sem hér hafi ríkt í kjölfar hrunsins.

Þetta kemur fram á Facebook síðu forsætisráðherra. 

„Mikið finnst mér dapurlegt að einu réttarhöldin í tengslum við hrunið sem eitthvað kveður að enn um sinn, séu vegna 9 menninganna svo nefndu. Það er fráleitt að þetta unga fólk hafi gegnt einhverju lykilhlutverki í því erfiða ástandi sem hér ríkti í kjölfar hrunsins eða að aðgerðir þess hafi ógnað stjórnskipan landsins.... Ofbeldi á aldrei að líða en það voru ekki gjörðir þessa fólks sem ógnuðu þjóðinni á þessum tíma,“ skrifar Jóhanna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert