Segjast geta tekið við Landhelgisgæslunni

TF LÍF, þyrla Landhelgisgæslunnar.
TF LÍF, þyrla Landhelgisgæslunnar.

Bæjarstjórn Reykjanesbæjar segist reiðubúinn til samstarfs við innanríkisráðuneytið um hagkvæmniathugun og  undirbúning  þess  að  flytja  Landhelgisgæsluna  til Suðurnesja í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands.

Í ályktun, sem samþykkt var á fundi bæjarstjórnar í gær segir, að á Reykjanesi  sé húsnæði, flugbrautir, góð hafnaraðstaða og stoðkerfi sem fullnægi  þörfum  Landhelgisgæslunnar  að  öllu leyti.  Stórt og fullkomið flugskýli sé á Ásbrú. Þá geti Njarðvíkurhöfn strax tekið við skipaflota Landhelgisgæslunnar.  Frá Reykjanesbæ sé stutt á aðalstarfssvæði  Landhelgisgæslunnar,  hafsvæðið  í  kringum Ísland. 

Þá megi ætla að aukin starfsemi Landhelgisgæslunnar í kjölfar breytinga á starfsemi Varnarmálastofnunar,  kalli  á stærra húsnæði og nálægð við þau tæki og tól sem heyra undir hana.

„Með flutningi Landhelgisgæslunnar til Reykjanesbæjar myndi ríkisvaldið sýni í  verki stuðning sinn við endurreisn atvinnulífs á Suðurnesjum auk þess að gera   Landhelgisgæsluna   að   mun  öflugri  stofnun  til  hagsbóta  fyrir sjófarendur, sjúklinga og landsmenn alla," segir í samþykkt bæjarstjórnarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert