ÓB bensín ætlar í dag að veita 7 króna afslátt af eldsneytislítranum til þeirra sem eru með svonefndan ÓB-lykil og ÓB frelsi og er ástæðan 7 marka sigur Íslendinga á Norðmönnum í gærkvöldi.
Þegar Íslendingar unnu 14 marka sigur á Japönum var veittur 14 króna afsláttur með þessum hætti daginn eftir. Önnur olíufélög veittu þá einnig mörg allt að 14 króna afslátt þann dag.