Vaka birtir framboðslista

Sara Sigurðardóttir, oddviti Vöku í kosningum til Stúdentaráðs.
Sara Sigurðardóttir, oddviti Vöku í kosningum til Stúdentaráðs.

Vaka - félag lýðræðissinnaðra stúdenta við Háskóla Íslands, hefur birt framboðslista félagsins til Stúdentaráðs og Háskólaþings Háskóla Íslands árið 2011. Kosið verður 2. og 3. febrúar og fer kosningin fram á Uglunni, innra neti skólans.

Sara Sigurðardóttir leiðir lista Vöku til Stúdentaráðs en hún er 22 ára gamall stjórnmálafræðinemi frá Vestmanneyjum. Hún situr í stjórn Politika, nemendafélags stjórnmálafræðinnar.  María Rut Kristinsdóttir, sálfræðinemi, leiðir lista Vöku í kosningum til Háskólaþings.

Vefur Vöku

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert