Fréttaskýring: Endurvinnslugjald lagt á hvert heimili
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Gjaldið er innheimt með fasteignagjöldum 2011. Gert er ráð fyrir að samtals muni gjaldtakan skila um 217 milljónum, sem er hlutur Reykjavíkurborgar í rekstri endurvinnslustöðva Sorpu bs. Áður var þessi fjárhæð greidd af útsvari.
Örn Sigurðsson, skrifstofustjóri umhverfis- og samgöngusviðs, sagði að samkvæmt lögum um úrgang ætti að innheimta gjöld vegna sorphirðu í samræmi við kostnað. Garðabær hefði m.a. innheimt sambærilegt gjald. Hugsunin væri sú að endurvinnslustöðvar sinntu þjónustu og fyrir hana væri innheimt gjald. Ekki hefði verið hægt að miða gjaldið við notkun enda ómögulegt að mæla það magn af flokkuðu sorpi sem er skilað.
Margir borgarbúar eru með endurvinnslutunnur við heimili sín, ýmist frá borginni eða einkaaðilum. Gjald fyrir tunnu frá einkaaðilum er um 1.000 krónur á mánuði. Sorp sem fer í endurvinnslutunnur frá einkaaðilum veldur borginni engum útgjöldum, heldur þvert á móti. Sá sem er með endurvinnslutunnu hendir minna sorpi í venjulegu svörtu tunnuna og fer væntanlega að jafnaði sjaldnar á endurvinnslustöðvar.
Lægri kostnaður af flokkuðu
Aðspurður hvort ekki sé sanngjarnt að þeir sem eru með endurvinnslutunnur fái afslátt af gjaldi vegna endurvinnslustöðva, bendir Örn á þeir noti líka endurvinnslustöðvar. Þar að auki búi borgin ekki yfir upplýsingum um hverjir séu með endurvinnslutunnur og hverjir ekki. Þetta hafi þó verið tekið til skoðunar. „Aðalatriðið er að niðurstaðan var að hafa gjaldið lágt,“ sagði Örn. Með því að leggja þetta gjald á hefði verið hægt að komast hjá því að hækka sorphirðugjald sem að öðrum kosti hefði hækkað.Mun ódýrara er fyrir borgina að taka á móti flokkuðum úrgangi. Kostnaður vegna flokkaðs sorps er um 4-5 krónur en óflokkaðs sorps um 12 krónur, að sögn Arnar.
Bloggað um fréttina
-
Guðleifur R Kristinsson jamm -
Haraldur Haraldsson Endurvinnslugjald lagt á hvert heimili/það er en við sama heigarðsrhornið ... -
Sigurður Haraldsson Hneyksli!
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Laugardagur, 11. febrúar 2012, Innlent Hrun í ruslinu frá hruni
- Föstudagur, 29. janúar 2010, Innlent 20% minna af óflokkuðu sorpi
- Föstudagur, 16. september 2011, Innlent Það kostar 75-150 kr. að borga af húsnæðislánum
- Mánudagur, 29. mars 2010, Innlent Sorpa frestar gjaldtöku
- Fimmtudagur, 30. júní 2011, Innlent Borgin lækkar sorphirðugjald
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































