Pottur gleymdist á eldavél

Pottur gleymdist á eldavél í íbúð í fjölbýlishúsi við Skúlagötu í Reykjavík um klukkan  hálf átta í kvöld. Húsráðandi hafði gleymt pottinum og brugðið sér af bæ.

Reykskynjari fór í gang og sendi boð til öryggisfyrirtækis, sem lét slökkviliðið vita sem fór strax á vettvang.

Lítið tjón hlaust af, en nokkur reykur var í íbúðinni. Íbúar nærliggjandi íbúða urðu ekki fyrir tjóni.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert