„Sýndardómur“

„Þetta er ekkert annað en sýndardómur“, segir Birna Gunnarsdóttir systir eins sakbornings eftir að dómur í máli nímenninganna féll í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður hinna ákærðu, segir óljóst hvort dómnum verið áfrýjað. Fullt var út úr dyrum í réttarsalnum og biðu margir fyrir utan salinn.

Niðurstaða Héraðsdóms varð sú að Andri Leó Lemarquis var dæmdur í 4 mánaða skilorðsbundið fangelsi, Þór Sigurðsson í 60 daga skilorðsbundið fangelsi og Sólveig Anna Jónsdóttir og Steinunn Gunnlaugsdóttir, voru dæmdar í 100 þúsund króna sekt. Aðrir voru sýknaðir.

Héraðsdómur sýknaði meðal annars alla sakborningana af ákæru fyrir að hafa í félagi framið brot gegn valdstjórninni. Vísar dómurinn til þess, að sakborningarnir hafi neitað því að hafa farið inn í þinghúsið með það í huga að beita starfsmenn þingsins ofbeldi eða hindra þá í störfum.

Þá bendi framburðir vitna og gögn í málinu, svo sem myndskeið, ekki til þess að átökin við þingverði og lögreglu hafi verið undirbúin. Þá hafi ekki verið leitt í ljós í málinu að fólkið hafi haft í frammi hótanir gagnvart lögreglu og þingvörðum. 

Dómur Héraðsdóms Reykjavíkur

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert