Náttúran skartaði sínu fegursta á Fimmvörðuhálsi þegar bandarískur ferðalangur kom þar við í þyrluferð með Norðurflugi í gærdag.
Og vart var annað hægt en að athuga hvort ekki væri enn ylur frá gossprungunni sem upp úr rann glóandi hraunið á síðasta ári.
Þyrlunni var haldið í gangi á meðan ferðalangurinn skaust út og skoðaði sig um en svo var haldið á brott til frekara útsýnisflugs.