Réðust á menn með öxi að vopni
Selfoss. www.mats.is
Fjórir menn eru í haldi lögreglunnar á Selfossi en þeir réðust á mann í dag vopnaðir öxi. Árásarmennirnir og sá sem ráðist var á þekktust og leikur grunur á að árásin tengist fíkniefnaviðskiptum.
Tveir menn tilkynntu til lögreglunnar á Selfossi, að þeir hefðu verið á gangi skammt frá verslun N1 á Selfossi þegar pallbíl, sem í voru fjórir menn, var ekið að þeim. Mennirnir fjórir stigu út úr bílnum og einn var með öxi. Hann réðist að öðrum gangandi manninum og sló til hans með öxinni.
Að sögn lögreglu tókst þeim, sem ráðist var á, að víkja sér undan fyrsta og öðru högginu en árásarmanninum tókst síðan að koma þremur lausum höggum á manninn sem féll við það í götuna. Eftir það héldu árásarmennirnir á brott.
Sá sem ráðist var á slapp með minniháttar áverka. Leitað var eftir aðstoð sérsveitar ríkislögreglustjóra til að leita að mönnunum og handtaka og höfðu þeir allir náðst innan klukkutíma. Tveir þeirra fundust á Eyrarbakka og hinir tveir á Selfossi.
Árásarmennirnir og sá sem ráðist var á þekktust og leikur grunur á að árásin tengist fíkniefnaviðskiptum. Lögreglan segir, að rannsókn málsins beinist meðal annars að því og muni hún standa fram á kvöld og halda síðan áfram í fyrramálið.
Árásarmennirnir losuðu sig við öxina á Selfossi og hún er ófundin. Tekin verður tekin afstaða til þess í fyrramálið hvort farið verður fram á gæsluvarðhald á þeim sem hafði sig mest í frammi í árásinni.
Bloggað um fréttina
-
Guðrún María Óskarsdóttir. Skyldi þurfa að blása til sóknar gegn hinum viðurstyggilegu afleiðingum ... -
maggi220 Bönnum World of Warcraft
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Mánudagur, 21. nóvember 2011, Innlent Úrskurðaður í gæsluvarðhald
- Laugardagur, 19. nóvember 2011, Innlent Árásarmanna enn leitað
- Miðvikudagur, 8. desember 2010, Innlent Líkamsárás í skóla á Selfossi
- Föstudagur, 14. maí 2010, Innlent Gæsluvarðhald yfir árásarmönnum staðfest
- Þriðjudagur, 26. apríl 2011, Innlent Grímuklæddir árásarmenn
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































