Heiðlóa í Heimaey

Heiðlóa með ánamaðk.
Heiðlóa með ánamaðk. mbl.is

Heiðlóa fannst á Heimaey í gær. Fram kemur á vefnum fuglar.is að þetta sé mögulega fyrsta heiðlóan sem komi til landsins í ár.

Segir að einungis hafi verið tilkynnt um eina heiðlóu á árinu eða þann 4. febrúar sl. Nú er talið nokkuð öruggt að það hafi verið fulgarfrá því í haust.

Þá segir að frá 1998 hafi fyrstu heiðlóurnar sést á tímabilinu 20. - 31. mars.

Þetta sé því  mjög óvenjulegur tími.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert