Hagsmunir ákveðinna ferðahópa fótum troðnir

Vetrarríki við Öskju í maímánuði.
Vetrarríki við Öskju í maímánuði.

Vélsleðamenn eru afar ósátir við ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur umhverfisráðherra að staðfesta tillögur stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðs um að takmarka umferð að þjóðgarðinum. Stjórn Landssambands íslenskra vélsleðamanna krefst þess að ráðherra endurskoði málið.

„Að mati stjórnar LÍV hafa þeir sem um málið hafa fjallað fyrir hönd þjóðgarðsins hunsað allar ábendingar og tillögur sem hefðu getað hjálpað til þess að víðtæk sátt næðist um umferð vélknúinna farartækja í þjóðgarðinum," segir í yfirlýsingu frá samtökunum. „Að fara fram með þeim hætti, að þeir sem hafa nýtt sér svæði innan þjóðgarðsins hvað mest, s.s. sleðamenn, jeppamenn, hestamenn og aðrir útivistarunnendur séu ekki hafðir með í ráðum, eru sannarlega ekki vinnubrögð sem sæma lýðræðisstjórnun."

Samtökin eru þeirrar skoðunar að staðfesting verndaráætlunarinnar hafi í för með sér „gríðarlega skerðingu á ferðafrelsi þeirra sem vilja njóta fallegrar náttúru og ferðast um svæðið á vélknúnum farartækjum." Fjölmargar ábendingar og athugasemdir hafi borist á löngum tíma frá LÍV og öðrum aðilum inn á borð ráðherra og einnig til stjórnar Vatnajökulsþjóðgarðsins. „Þetta hafa verið afar vel ígrundaðar ábendingar og vel studdar málefnalegum rökum. Þær hafa allar veið hunsaðar," segir í yfirlýsingu samtakanna.

„Sem dæmi um áhrif þessarar ákvörðunar þá er vélsleðamönnum hér eftir bannað að ferðast um viss svæði, eins og til dæmis Öskjusvæðið, eftir 1. maí. Allir sem þekkja hálendi Íslands vita að svo snemma vors hentar svæðið afar vel til ferðalaga á snjó, umferð annarra ferðalanga er í lágmarki og svo framvegis. Það liggur í hlutarins eðli að vélsleðar eru eingöngu notaðir þegar snjór er yfir landinu og augljóst má vera að allar slóðir eftir vélsleða hverfa um leið og snjóa leysir.

Augljóst er einnig að stór hópur ferðafólks ferðafólks á þess ekki kost að ferðast um landið á tveimur jafnfljótum og möguleikar þessa fólks til að njóta náttúru landsins eru því verulega takmarkaðir. Hvers vegna hagsmunir ákveðinna ferðahópa eru jafn fótum troðnir og raun ber vitni með ákvörðun umhverfisráðherra er með öllu óskiljanlegt. "

Stjórn LÍV, sem er aðili að SAMÚT (samtök útivistarfélaga) og Ferðafrelsi sættir sig ekki við þessa ákvörðun og fer fram á að umhverfisráðherra endurskoði hana. Þegar í stað verði kallað eftir fulltrúum frá öllum hagsmunaaðilum þar sem farið verði betur yfir þessi mál og reynt að koma til móts við alla sem hlut eiga að máli.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert