Íslenskir vítisenglar á leið heim

Merki Hells Angels á félagsheimili MC Iceland í Hafnarfirði.
Merki Hells Angels á félagsheimili MC Iceland í Hafnarfirði.

Von er á átta félögum í MC Iceland til landsins í kvöld en mennirnir voru stöðvaðir á Gardemoen-flugvelli við Ósló í fyrradag. Lögreglan á Keflavíkurflugvelli hefur staðfest að von sé á mönnunum.

Gera má ráð fyrir að mennirnir verði lentir upp úr kl. 23 í kvöld þar sem það er eina flugið frá Gardemoen-flugvelli í Oslo til Keflavíkur, á áætlun Icelandair í kvöld.

MC Iceland er orðið fullgildur aðili að Vítisenglum og ætluðu íslensku félagarnir að vera viðstaddir inntökuathöfn Vítisengla sem var fyrirhuguð í Noregi um helgina.

Ekki hefur náðst í Morten Furuholmen, lögmann áttmenninganna, í dag þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.


mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert