Fjórðungur hefur kynnt sér Icesave

mbl.is/Ómar

Rúmur fjórðungur landsmanna segist hafa kynnt sér samning ríkisstjórnarinnar við Breta og Hollendinga um lausn Icesave deilunnar. Þetta kom fram í þjóðarpúlsi Gallup, sem Útvarpið sagði frá.

Rúmur þriðjungur segist hins vegar ekki hafa kynnt sér hann vel. Mun fleiri karlar en konur segjast hafa kynnt sér samninginn vel.

Spurt var: Hversu vel eða illa hefur þú kynnt þér samning ríkisstjórnarinnar við Breta og Hollendinga um lausn Icesave deilunnar.

Af þeim sem tóku afstöðu sögðust 3% hafa kynnt sér samninginn mjög vel, 25% sögðust hafa kynnt sér hann frekar vel, 34% sögðust hvorki hafa kynnt sér hann vel né illa, 20% sögðust hafa kynnt sér samninginn frekar illa og 17% mjög illa.

Könnunin var gerð dagana 23. febrúar til 2. mars, svarhlutfall var 58,4 prósent og úrtakið var 1279 manns.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert