Herjólfur ekki í Landeyjahöfn á föstudag

Landeyjahöfn.
Landeyjahöfn. mbl.is/RAX

Ljóst er að Herjólfur mun ekki sigla til og frá Landeyjahöfn fyrir helgina, að því er kemur fram á síðu Herjólfs á Facebook.

„Við tókum þá ákvörðun síðdegis í gær stoppa bókanir á föstudaginn þar sem nánast engar líkur eru á að hægt verði að sigla til Landayjahafnar á föstudeginum. Við Gerum það í þeim tilgangangi að fólk fái ekki falskar vísbendingar,“ sagði hefur vefurinn Eyjafréttir.is eftir Guðmundi Pedersen, hjá Eimskip í dag.
 
Þar kemur fram, að ölduhæð við Landeyjahöfn fór yfir tvo metra klukkan fimm í morgun og er nú 2,1 metri samkvæmt öldudufli við höfnina. Dýpkunarksipið Skandia getur ekki athafnað sig við Landeyjahöfn í meira en tveggja metra ölduhæð. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert