Margir hafa kosið um Icesave

Utankjörfundarkosning í Laugardalshöll. Þjóðaratkvæðagreiðsla vegna Icesave.
Utankjörfundarkosning í Laugardalshöll. Þjóðaratkvæðagreiðsla vegna Icesave. Kristinn Ingvarsson

Um 1.300 manns kusu utankjörfundar um Icesave-samninginn í Reykjavík í dag. Alls hafa því um 6.680 manns kosið í kosningunum og er það sambærilegur fjöldi við það sem var fyrir Alþingiskosningarnar árið 2009. Á sama tíma fyrir Icesave-kosningarnar í fyrra höfðu um 2.700 manns kosið utankjörfundar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert