Fleiri konur á kjörskrá

Kjósendur bíða eftir því að geta skilað utankjörstaðaatkvæði við Laugardalshöll.
Kjósendur bíða eftir því að geta skilað utankjörstaðaatkvæði við Laugardalshöll. mbl.is/Golli

Alls eru 232.539 á kjörskrá fyrir Icesave-kosningarnar í dag. Konur eru eilítið fleiri en karlar eða 116.656 á móti 115.883. Athygli vekur að kjósendum sem hafa lögheimili erlendis hefur fjölgað um hátt í 17% frá alþingiskosningunum 2009.

Fjallað er um hina tölulegu hlið kosinganna á vef Þjóðskrár Íslands en þar segir að kjósendum á kjörskrá hafi fjölgað um 4.696 frá alþingiskosningunum, eða um 2,1%. En við alþingiskosningarnar 2009 voru 227.843 á kjörskrá.

Fjallað er um fjölgun íslenskra kjósenda með lögheimili erlendis á vef Þjóðskrár. 

„Kjósendur með lögheimili erlendis eru 11.608 eða 5,0% kjósendatölunnar og hefur þeim fjölgað um 1.667 frá síðustu alþingiskosningum eða um 16,8%.  Kjósendum með lögheimili hér á landi fjölgar um 3.029 eða 1,4%. Þeir sem vegna aldurs fá nú að kjósa í fyrsta sinn frá alþingiskosningunum 2009 eru 9.173 eða 3,9% af kjósendatölunni.“ 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert