Engin niðurstaða á fundi SA og ASÍ

Samningamenn ASÍ og SA ræddu saman á fundi í hádeginu.
Samningamenn ASÍ og SA ræddu saman á fundi í hádeginu. mbl.is/Kristinn

Engin niðurstaða varð á fundi forystumanna ASÍ og Samtaka atvinnulífsins í hádeginu um næstu skref í kjaraviðræðum. Samtökin ætla að vera í sambandi við stjórnvöld í dag.

Fundurinn stóð í um eina klukkustund, en engin niðurstaða varð á fundinum, að sögn Hannesar G. Sigurðssonar, aðstoðarframkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Hann segir stöðu viðræðna því óbreytta.

Forystumenn ASÍ sitja nú á fundi til að fara yfir stöðuna. Mikillar óþolinmæði er farið gæta í þeirra röðum og eru komnar fram kröfur um að gerður verði skammtímasamningur í stað þess þriggja ára samnings sem rætt hefur verið að gera.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert