Sterkir hliðarvindar

Lögregla hvetur ökumenn til að fara varlega á Reykjanesbrautinni.
Lögregla hvetur ökumenn til að fara varlega á Reykjanesbrautinni. mbl.is/ÞÖK

Það hvessir enn á Suðurnesjum og nokkrar tilkynningar hafa borist vegna lausra hluta sem eru að fjúka, m.a. fauk laust timbur á bíla niðri við höfn.

Lögregla brýnir fyrir ökumönnum að fara varlega á Reykjanesbrautinni, þar eru sterkir hliðarvindar sem gætu reynst hættulegir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert