Ísbjörninn fluttur til Reykjavíkur

Ísbjörninn á leið til Reykjavíkur.
Ísbjörninn á leið til Reykjavíkur. Mynd / Jón Hálfdán Pétursson

Umhverfisstofnun segir að ákveðið hafi verið að fella hvítabjörninn, sem sást í morgun í Hælavík á Hornströndum, af öryggisástæðum. Hefur ísbjarnarhræið verið flutt til Reykjavíkur þar sem Náttúrufræðistofnun Íslands tekur við dýrinu og rannsakar það.

Í morgun barst Landhelgisgæslunni tilkynning um dýrið og flaug þyrla Gæslunnar á Ísafjörð þaðan sem flogið var á Hornstrandir.

Umhverfisstofnun segir í tilkynningu að þegar þangað var komið hafði dýrið fært sig um set og fannst eftir nokkra leit í Rekavík (Bakhöfn). Þoka var í efstu brúnum og var mikil yfirferð á dýrinu.

„Lögreglan á Ísafirði var með í för og mat aðstæður þannig að ómögulegt væri að vakta dýrið allan sólarhringinn á svæðinu og tryggja þannig að það færi ekki í sjó eða flytti sig um set í átt að byggð. Því var tekin ákvörðun um að fella dýrið af öryggisástæðum,“ segir í tilkynningu.

Þá segir að unnið hafi verið í samræmi við viðbragðsáætlun um viðbrögð við landtöku hvítabjarna. Lögreglan á Ísafirði hafi stjórnað aðgerðum og með í för hafi verið fulltrúar Umhverfisstofnunar, fulltrúi yfirdýralæknis ásamt reynslumiklum skyttum.


Hvítabirnir eru stærstu landrándýr jarðar, stórhættulegir og óútreiknanlegir. Talið er að heimsstofn hvítabjarna telji 22.000 dýr í dag. Flesta hvítabirni er að finna í Kanada. Hvítabirnir eru á lista IUCN (Alþjóðanáttúruverndarsamtökin) yfir dýr í yfirvofandi hættu. Þrátt fyrir þetta styður hvítabjarnarráð IUCN sjálfbæra nýtingu á öllum 19 stofnum hvítabjarna. Um 800 dýr eru felld árlega.

Árið 2009 var unnin skýrsla starfshóps sem umhverfisráðherra skipaði um tillögur að viðbrögðum við landgöngu hvítabjarna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert