Forseti Slóveníu heimsótti Alþingi

Börn tóku á móti forseta Slóveníu á Bessastöðum í dag.
Börn tóku á móti forseta Slóveníu á Bessastöðum í dag. mbl.is/Kristinn

Danilo Türk, forseti Slóveníu, kom í opinbera heimsókn til Íslands í dag. Hann heimsótti meðal annars Alþingi á fimmta tímanum í dag og kom á þingpalla.

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, var þá að mæla fyrir  frumvarpi um Stjórnarráð Íslands. Gerði hún hlé á ræðunni að ósk Ragnheiðar Ríkharðsdóttur, sem stýrði þingfundi og stóðu þingmenn upp, Türk til heiðurs.

Heimsókn forsetans hófst á Bessastöðum með hátíðlegri athöfn á Bessastöðum kl. 14:30. Þar tóku íslensku forsetahjónin ásamt ráðherrum úr ríkisstjórn Íslands og embættismönnum á móti hinum erlendu gestum. Í kjölfarið fylgdi viðræðufundur forseta landanna.

Frá athöfninni á Bessastöðum
Frá athöfninni á Bessastöðum mbl.is/Kristinn
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert