Hafa áhyggjur af stöðu heimila og einstaklinga

Prestastefna 2011 var haldin í Reykjavík 3.-5. maí 2011. Af …
Prestastefna 2011 var haldin í Reykjavík 3.-5. maí 2011. Af myndavef Kirkjunnar.

Þrjár ályktanir voru samþykktar á lokadegi Prestastefnu 2011. Prestastefnan lýsir m.a. yfir miklum áhyggjum vegna gríðarlegra erfiðar fjárhagsstöðu margra fjölskyldna og einstaklinga í landinu. Þá hefur hún áhyggjur af miklum niðurskurði sóknargjalda. 

Í ályktu um erfiða fjárhagsstöðu fjölskyldna og einstaklinga segir eftirfarandi:

„Prestastefna 2011 lýsir yfir miklum áhyggjum vegna gríðarlega erfiðrar fjárhagsstöðu margra fjölskyldna og einstaklinga í landinu. Prestastefna kallar eftir því að stjörnvöld geri enn betur en orðið er til að liðsinna fólki og greiða úr vanda þess og skapa því þannig vonarríka framtíð hér á landi, m.a. með því að reyna eftir megni að efla atvinnu sem er forsenda þess að efnahagsástandið batni.

Prestastefna þakkar mikilsverðan stuðning hjálparstofnana og fagnar nýjum aðferðum Hjálparstarfs kirkjunnar til að liðsinna þeim sem búa við erfið kjör.

Prestastefna hvetur söfnuði þjóðkirkjunnar um land allt til að vera vakandi fyrir því hvernig þeri geti liðsinnt þeim sem eru í andlegri og veraldlegri neyð. Prestastefnan hvetur kristið fólk um land allt til að styðja hjálparstofnanir og veita með orðum, verkum, von og trú, kærleika og samhug inn í íslenskt samfélag.“


Í ályktun um niðurskurð sóknargjalda segir:

„Prestastefna 2011 lýsir yfir áhyggjum af miklum niðurskurði sóknargjalda. Eins og ýmsar stofnanir í landinu hafa sóknir þjóðkirkjunnar þurft að hagræða mikið undanfarin ár, en nú er svo komið að fjölmargar þeirra geta vart sinnt lengur grunnþjónustu sinni við t.d. börn, ungt fólk og aldraða. Prestastefna 2011 fagnar ákvörðun innanríkisráðherra um að skipuð verði nefnd til að greina hvaða áhrif niðurskurður sóknargjalda hefur haft og mun hafa á þjónustu og starf þjóðkirkjunnar og sókna hennar um land allt.“


Ályktun um samræmda gjaldskrá fyrir afnot af aðstöðu í kirkjum er svohljóðandi:

„Prestastefna 2011, haldin í Neskirkju í Reykjavík, 3.-5. maí 2011 vísar því til kirkjuráðs að skoða hvort tímabært sé að tekin verði upp samræmd gjaldskrá fyrir afnot af aðstöðu í kirkjum. Tekið verði tillit til þess hvort um er að ræða sóknarbörn, þjóðkirkjufólk utan soknar og fólks utan þjóðkirkju og leitast  skuli við að sóknarbörn fái gjaldfrjáls afnot af kirkju sinni.“



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert