Ummæli Þráins á hans eigin ábyrgð

Þráinn Bertelsson í ræðustól á Alþingi.
Þráinn Bertelsson í ræðustól á Alþingi.

Ummæli Þráins Bertelssonar, þingmanns Vinstri grænna, um aðra þingmenn hafa ekki verið rædd innan þingflokks VG.

„Það hafa ýmis ummæli verið látin falla bæði innan og utan þings sem dæma sig sjálf. Það er umhugsunarefni hvernig umræðuhefðin á Alþingi hefur þróast frá hruni,“ segir Þuríður Backman, formaður þingflokksins.

Hún sagðist ekki vilja tjá sig um þessi einstöku ummæli Þráins, en sagði að það sem sagt væri utan þings væri alfarið á ábyrgð þingmannanna sjálfra.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert