Héldu manni nauðugum

Tveir karlmenn voru handteknir í Hafnarfirði á miðvikudag eftir að lögreglu barst tilkynning um líkamsárás. Sá sem fyrir henni varð er karlmaður á þrítugsaldri en hann var með áverka víða á líkamanum og er m.a. nefbrotinn.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segja, að talið sé að manninum hafi verið haldið nauðugum í meira en hálfan sólarhring og að barsmíðarnar hafi farið fram á fleiri en einum stað.

Á dvalarstað árásarmannanna, sem eru á þrítugs- og fertugsaldri, var lagt hald á bæði fíkniefni og ýmis barefli. Þeir og þolandinn eru allir taldir tengjast ákveðnum vélhjólaklúbbi.

Árásarmennirnir hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 20. maí að kröfu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og er það gert á grundvelli rannsóknarhagsmuna. Þeir hafa kært úrskurðinn til Hæstaréttar.

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu naut aðstoðar sérsveitar ríkislögreglustjóra við aðgerðirnar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert