Lagðist fáklæddur í rúm nágrannans

Lögreglan þurfti að sannfæra manninn um að hann væri í …
Lögreglan þurfti að sannfæra manninn um að hann væri í raun í rúmi nágranna síns.

Lögreglan fór í heldur óvanalegt útkall í austurbæ Reykjavíkur í nótt þegar ölvaður maður fór íbúðavillt og lagðist upp í rúm hjá nágranna sínum, á nærfötunum einum klæða. Tók dágóðan tíma að vekja hann og fá hann til að átta sig á að hann væri ekki staddur heima hjá sér.

Maðurinn hafði verið að skemmta sér og þegar hann fór að sofa, í réttri íbúð, var hann nokkuð ölvaður. Hann vaknaði skömmu síðar og í svefnrofunum ákvað hann að fara aðeins út á svalir sem eru sameiginlegar með samliggjandi íbúð. Maðurinn, sem var nýfluttur í íbúðina, ruglaðist síðan á svalahurðum og fór inn til nágrannans og lagðist upp í hjá honum.

Nágranninn vaknaði upp með andfælum og hringdi á lögregluna. Þegar hún mætti á staðinn tók það nokkurn tíma að vekja manninn og síðan fá hann til að átta sig á því sem hafði gerst. 

Maðurinn fór yfir í sína íbúð en að sögn lögreglunnar ætlar hann að ræða við nágranna sinn í dag og biðjast afsökunar.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert