Sótt um tannlæknaþjónustu fyrir 700 börn

Tryggingastofnun hafa borist umsóknir um ókeypis tannlæknaþjónustu fyrir nærri 700 börn frá rúmlega 300 tekjulágum heimilum. Af þeim hafa umsóknir 548 barna verið samþykktar. Umsóknarfrestur er til 1. júní.

Opnað var fyrir umsóknir um þjónustuna 2. maí sl. Segir velferðarráðuneytið, að 23. maí hafi verið búið að afgreiða 320 umsóknir fyrir 663 börn, þar af voru 306 (46%) piltar og 357 (54%) stúlkur. Af þeim hafa 548 (86%) verið samþykktar.

Af samþykktum umsóknum eru 470 (71%) vegna barna af höfuðborgarsvæðinu en 193 (29%) vegna barna af landsbyggðinni. Ferðaheimildir 56 foreldra og forráðamanna vegna 146 barna hafa verið samþykktar.

Um átaksverkefni er að ræða sem stendur aðeins í sumar. Sækja þarf um þjónustuna til Tryggingastofnunar sem metur hvort réttur til þjónustunnar er fyrir hendi.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert