Svandís tekin við

Svandís Svavarsdóttir.
Svandís Svavarsdóttir.

Svandís Svavarsdóttir, umhverfisráðherra, gegnir nú einnig embætti mennta- og menningarmálaráðherra í stað Katrínar Jakobsdóttur, sem er byrjuð í fæðingarorlofi.

Svandís tók við embætti umhverfisráðherra þann 10. maí 2009 og mun hún áfram gegna því embætti samhliða embætti mennta- og menningarmálaráðherra.

Svandís lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1983 og BA prófi í almennum málvísindum og íslensku frá Háskóla Íslands 1989 og stundaði MA-nám í íslenskri málfræði 1989-1993.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert