Holtaskóli sigraði í skólahreysti í Finnlandi

Lið Holtaskóla hefur sigrað í skólahreysti bæði á Íslandi og …
Lið Holtaskóla hefur sigrað í skólahreysti bæði á Íslandi og í Finnlandi.

Lið Holtaskóla í Reykjanesbæ fór með sigur af hólmi á skólahreystimóti í Finnlandi í dag. Um var að ræða kynningarmót þar sem íslensku krakkarnir kepptu við lið frá 14 finnskum skólum. 

Fram kemur á vef skólans, að þau Birkir Freyr, Elva Dögg, Eyþór og Sólný Sif hafi átt góðan dag í áhöldunum og vakið verðskuldaða athygli fyrir vasklega framgöngu. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert