Skorpulifur verður algengari

Áfengisneysla hefur aukist mikið á undanförnum árum og því töldu …
Áfengisneysla hefur aukist mikið á undanförnum árum og því töldu læknari fyrirséð að skorpulifrar tilfellum myndi fjölga.

Íslendingar eru ekki lengur með lægstu tíðni skorpulifur á Vesturlöndum, eins og þeir hafa verið áratugum saman. Þetta kemur fram í fyrirlestri, sem Sigurður Ólafsson, meltingar- og lifrarlæknir á Landspítalnum, heldur á ráðstefnu SÁÁ síðar í vikunni.

Á vef SÁÁ er haft eftir Sigurði, að rekja megi þessa aukningu í fyrsta lagi til almennt aukinnar áfengisneyslu, í öðru lagi til afleiðingar lifrabólgu C sem aðallega hafi breiðst út meðal sprautufíkla og í þriðja lagi til aukinnar offitu og sykursýki. Á síðasta ári greindust yfir 40 nýir sjúklingar með skorpulifur.

Sigurður segir að beint samhengi sé á milli áfengisneyslu og skorpulifrar. Áfengisneysla hafi aukist gríðarlega á undanförnum árum og því hafi verið fyrirséð að skorpulifrartilfellum myndi fjölga.

Haft er eftir Sigurði,  að þeir sem greinast með skorpulifur eigi oft góða möguleika á að lifa ágætu lífi sé gætt að góðu lækniseftirliti og í vissum tilvikum sé gefin lyfjameðferð. Skorpulifur geti hins vegar leitt til lifrarbilunar og þá geti lifrarígræðsla verið eina úrræðið.

Ráðstefna SÁÁ um rannsóknir á fíknisjúkdómum og fíknitengdum sjúkdómum sem fram fer í Von á fimmtudaginn.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka