Fordæmir niðurrifsöfl

Steingrímur J. Sigfússon á Alþingi í kvöld.
Steingrímur J. Sigfússon á Alþingi í kvöld. mbl.is/Golli

Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra og formaður VG, sagði þjóðfélagsumræðuna skiptast í tvö horn í eldhúsdagsumræðum í kvöld. Annars vegar færu þeir sem fjölluðu gagnrýnið um erfiðleikana og hins vegar þeir sem gerðu allt til að brjóta það niður sem vel væri gert.

Sagði Steingrímur „gamla og geðilla fauska“ þar á ferð án þess að nafngreina niðurrifsmennina. Skaut hann svo föstum skotum að Bjarna Benediktssyni, formanni Sjálfstæðisflokksins, og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknar, fyrir meinta neikvæðni í greiningu á þjóðfélagsmálum í umræðunum fyrr í kvöld.

Ræða Steingríms gekk öðrum þræði út á að rökstyðja þá skoðun hans að stjórnvöld hefðu náð góðum árangri í baráttunni við kreppuna.

Velta á fasteignamarkaði það sem af sé ári væri 108% meiri en í fyrra. Í maí hefðu 37.200 erlendir ferðamenn farið um Leifsstöð og um 2.200 nýir bílar selst á árinu miðað við 997 á sama tíma í fyrra. Þá hefði síðasta væntingavísitala Gallups hækkað um 11% og kreditkortavelta aukist.

Skuldir ríkissjóðs væru nú mun minni en óttast var eftir hrunið eða 40% af þjóðarframleiðslu og 80,5% ef t.d. lífeyrisskuldbindingar séu teknar með.

Þá væri sú tillaga Hafró að auka kvóta á þorski fagnaðarefni sem Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, kæmi ekki auga á. Jafnframt væri tillaga Hafró um aukna loðnuveiði og fyrirhuguð vinnsla á makríl til manneldis í sumar til að auka tekjur þjóðarbúsins enn frekar.

Steingrímur benti einnig á að skuldatryggingaálag ríkisins hefði nú í fyrsta sinn frá 2007 farið niður fyrir 200 stig. Hann fjallaði einnig um kvótafrumvörpin og gerði grein fyrir rökunum að baki því að samþykkja þau á komandi þingi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert