Hundar drápu fé á Eyrarbakka

Tveir boxerhundar drápu tugi kinda og lamba við Þórðarkot í Eyrarbakkahreppi áður en þeir náðust í morgun og voru aflífaðir á staðnum.

Fram kemur á vef Sunnlenska, að fangar af Litla-Hrauni, sem voru við girðingarvinnu við Þórðarkot í morgun, sáu hundana þar sem þeir voru að elta sauðfé og bíta.

Eigandi kindanna fór á staðinn ásamt fleiri mönnum og voru hundarnir skotnir þar sem þeir voru í fénu en bændur hafa leyfi samkvæmt lögum til að fella dýrbíta skilyrðislaust.

Fram kemur á vefnum, að hundarnir hafi drepið að minnsta kosti 20 lömb og nokkrar kindur auk þess sem sært fé sást á svæðinu.

Sunnlenska 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert