Iðrast þess að hafa ekki sagt sig úr stjórninni

Skýrsla rannsóknarnefndar kirkjuþings.
Skýrsla rannsóknarnefndar kirkjuþings. mbl.is / Eggert

„Þetta er alveg hárrétt athugasemd. Ég átti auðvitað að segja mig frá þessu strax. Það var auðvitað ekki hægt að búast við því að ég væri hæfur til að fjalla um þessi mál þar sem það snerti svo mjög minn yfirmann,“ segir sr. Baldur Kristjánsson, sóknarprestur í Ölfusi, í tilkynningu á heimasíðu sinni í dag.

Rannsóknarnefnd kirkjuþings, um viðbrögð og starfshætti þjóðkirkjunnar vegna ásakana á hendur Ólafi Skúlasyni fyrrum biskupi um kynferðisbrot, gerði sérstakar athugasemdir í skýrslu sinni sem birt var sl. föstudag við þá ákvörðum Baldurs að sitja fundi stjórnar Prestafélags Íslands í febrúar og mars árið 1996 þegar umrædd brot voru þar til umfjöllunar. 

„Þegar ég lít til baka yfir þetta tímabil sé ég eftir að hafa verið þarna og iðrast þess að hafa ekki einfaldlega sagt mig úr stjórn Prestafélagsins.  Þar var ég, í febrúar og mars 1996, einfaldlega of nálægur málinu og of háður biskupi og lögfræðingum hans.

Ég hef sagt mig frá Kirkjuþinginu á morgun, þriðjudag. Ég tel að viðbrögð þess verði trúverðugri því færri sem þar eru sem komu við sögu. Frekari viðbrögð af minni hálfu birtast síðar en óneitanlega hef ég hugleitt ýmislegt. Ég fékk ofanígjöf frá nefndinni. Undan því verður ekki vikist.

Og þær Sigrún Pálína Ingvarsdóttir, Dagbjört Guðmundsdóttir og Stefanía Þorgrímsdóttir eiga alla mína samúð og stuðning. Ég hef áður beðið Sigrúnu og Dagbjörtu fyrirgefningar persónulega fyrir mína hönd og kirkjunnar og ítreka það hér og bið Stefáníu að sjálfsögðu fyrirgefningar líka,“ segir ennfremur í tilkynningunni.

Heimasíða Baldur Kristjánssonar

Sr. Baldur Kristjánsson, sóknarprestur í Ölfusi.
Sr. Baldur Kristjánsson, sóknarprestur í Ölfusi. mbl.is / Sigurður Bogi
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert