Dimmuborgir og Hverfell friðlýst

Fjölmenni var við athöfnina við Hverfellstjarnir í dag.
Fjölmenni var við athöfnina við Hverfellstjarnir í dag. mbl.is/Birkir Fanndal

Í dag voru undirritaðir í Mývatnssveit samstarfssamningar og  friðlýsingar vegna tveggja vinsælla ferðamannastaða í sveitinni, þar sem eru Dimmuborgir og Hverfell/fjall Að því tilefni var íbúum sveitarinnar og öðrum boðið til athafna sem fóru fram á Hallarflöt í Dimmuborgum, síðan við Hverfellstjarnir og loks í Vogafjósi.

Það voru fulltrúar Umhverfisráðuneytis, landeigenda, og sveitarstjórnar sem gengu frá pappírum vegna þessa.

Dimmuborgir eru í eigu Landgræðslunnar en Hverfell/fjall í eigu landeigenda Voga.

Svandís Svavarsdóttir ráðherra ávarpaði samkomuna á báðum stöðum, en auk hennar töluðu Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri, Anna K Ólafsdóttir frá Umhverfisstofnun, Jón Gunnar Ottósson forstjóri Náttúrufræðistofnunar, og Jóhann Friðrik Kristjánsson formaður landeigendafélags Voga. Fram kom í ræðum að báðar þessar friðlýsingar áttu sér skamman aðdraganda en eftir að frumkvæði kom frá landeigendum var unnið hratt en markvisst að því að ljúka málinu, en á þessu ári hafa verið tryggðar 5 milljónir kr. til verkefnisins.

Í máli Svandísar ráðherra kom fram að áfram verði haldið á sömu braut með helstu ferðamannastaði Mývatnssveitar, enda hefur verið stofnað til samstarfsvettvangs í því skyni, þar sem fulltrúi ráðuneytis, Umhverfisstofnunar og jarðeigenda eiga sæti, eftir því sem við á hverju sinni.

Þörf á vegabótum og öðrum lagfæringum

Væntingar eru við það bundnar meðal heimafólks að samningarnir leiði til þess að vegabætur, stígagerð og aðrar lagfæringar gangi greiðlega í framtíðinni og að fjármagn hafi verið tryggt til framtíðar með þessum gjörningi.

Að loknum athöfnum á fyrrgreindu stöðunum var farið í Vogafjós þar sem boðið var uppá myndarlegar veitingar. Töluvert fjölmenni kom til athafna þessara.

Mikill fjöldi fólks heimsækir Dimmuborgir á ári hverju og þar má segja að Landgræðslan hafi staðið myndarlega að verki, enda komin á margan hátt prýðileg aðstaða fyrir ferðamenn, nú síðast með tilkomu Kaffi Borga.

Við Hverfell/fjall, er aftur á móti varla hægt að tala um aðstöðu, þar er vissulega mikið verk óunnið en þangað koma tugir og jafnvel hundruð gesta daglega yfir sumartímann.

Dimmuborgir voru friðlýstar við athöfn á Hallarflöt.
Dimmuborgir voru friðlýstar við athöfn á Hallarflöt. mbl.is/Birkir Fanndal
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert