Fréttaskýring: Ísland ökumaðurinn á vegi samningsviðræðna

Viðhorf framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins til inngöngu Íslands í sambandið voru rædd á fundi í Háskóla Íslands ... stækka

Viðhorf framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins til inngöngu Íslands í sambandið voru rædd á fundi í Háskóla Íslands í gær. reuters

Morgunblaðið Hjalti Geir Erlendsson hjaltigeir@mbl.is
Eiginlegar aðildarviðræður Íslands og Evrópusambandsins hefjast næstkomandi mánudag, 27. júní. Þá lýkur jafnframt formlega rýnivinnu sem hófst í nóvember á síðasta ári.

Rýnivinnan fólst í nákvæmri greiningu á löggjöf ESB sem Ísland þarf að gangast undir. Vinnunni var ætlað að varpa ljósi á það hversu reiðubúið landið er, í hverjum málaflokki fyrir sig, til að ganga í sambandið. Þegar hinar eiginlegu viðræður hefjast munu samninganefndir ESB og Íslands fara nákvæmlega í gegnum hvern samningskafla fyrir sig í aðildarsamningnum. Samningskaflarnir eru 33 talsins í jafnmörgum málaflokkum.

Viðhorf framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins til inngöngu Íslands voru til umræðu á hádegisfundi sem fór fram í gær á vegum Rannsóknarseturs um smáríki og sendinefndar ESB á Íslandi. Alexandra Cas Granje, sviðsstjóri stækkunarstofu ESB, flutti þar erindi. Hún er yfirmaður þeirrar skrifstofu sem fer með aðildarviðræður ESB við Ísland, Króatíu, fyrrum Júgóslavíulýðveldið Makedóníu og Tyrkland.

Granje sagði að stjórnvöld á Íslandi mundu algjörlega ráða því hversu langan tíma inntökuferlið tæki. Ísland væri bílstjórinn og réði algjörlega hraðanum. Hún sagði jafnframt undangengna rýnivinnu sanna að Ísland væri í algjörum sérflokki miðað við önnur ríki sem nýlega hefðu gengið í Evrópusambandið þar sem Ísland uppfyllti þegar vel flest skilyrði sem sambandið setti ríkjum sem vildu inngöngu. Í máli Granje kom fram að nú væri ljóst að þrjá málaflokka væntanlegs aðildarsamnings þyrfti að skoða sérstaklega vel. Það væru landbúnaðarmál, sjávarútvegsmál og umhverfismál. Það síðastnefnda vegna hvalveiða Íslendinga sem Granje segir á engan hátt samræmast stefnu ESB.

Sjávarútvegsóvissa

Það kemur eflaust engum á óvart að nefndir málaflokkar standi út af borðinu. Sjávarútvegsmálin kunna þó að valda mestum töfum á aðildarviðræðunum. Ekki síst þar sem nú stendur yfir heildarendurskoðun á fiskveiðistefnu og löggjöf ESB. Granje sagðist vonast til þess að meiri líkindi yrðu á fiskveiðistefnu ESB og Íslands eftir að sú endurskoðun hefði farið fram. Hún nefndi þó sérstaklega bann við erlendri fjárfestingu sem væri í gildi í íslenskum sjávarútvegi. Slíkt fortakslaust bann gengi ekki innan ESB.

Þá voru enn fremur nokkur atriði sem Granje taldi geta hægt á inngönguferlinu. Til dæmis þyrfti Ísland að sjá til þess með fullnægjandi hætti að reglum ESB um fjármálamarkaði yrði framfylgt í landinu. Þá þyrfti sérstaklega að skoða fjármagnsflæði í ljósi gildandi gjaldeyrishafta. Og enn kom Icesave til umræðu. Mögulega þyrfti farsæll endir að koma til á þeirri langþreyttu deilu milli Íslendinga, Breta og Hollendinga. Loks gætu milliríkjadeilur um makrílveiðar haft einhver áhrif.

Fyrirmyndaríkið Ísland

Granje sagði að þótt þessi atriði kynnu að hljóma stórvægileg í eyrum Íslendinga væru þetta smámál miðað við það sem ESB glímdi við á Balkanskaga og í Tyrklandi þar sem samningaviðræður væru af allt öðrum toga. Víða þyrfti að gera verulega breytingar á stjórnkerfum ríkja og tryggja borgurum sjálfsögð mannréttindi. Væntanleg innganga Króatíu gæfi þó góð fyrirheit.

Á Íslandi stæði lýðræði og jafnrétti traustum fótum, hér væri virt réttarríki og tiltölulega lítil spilling.

En þá stendur eftir spurningin: Ef lífskjör eru svona góð á Íslandi af hverju ættum við þá að ganga í Evrópusambandið? Granje fullyrðir að með inngöngu í Evrópusambandið muni Ísland öðlast sterkari rödd innan alþjóðasamfélagsins auk þess að taka beinan þátt í ákvarðanatöku innan sambandsins. Þá muni upptaka evru styrkja efnahag landsins.

Granje segir framkvæmdastjórn ESB almennt mjög jákvæða í garð inngöngu Íslands í sambandið. Ekki voru allir jafn sáttir á fundinum en við upphaf fyrirlesturs Granje ruddist æstur mótmælandi inn og hrópaði ókvæðisorð um hugsanlega inngöngu Íslands Í ESB.

Má fresta

Undangengin rýnivinna sem hefur farið fram á löggjöf Íslands og ESB þarf ekki að vera til einskis fari svo að stjórnvöld á Íslandi ákveði að fresta aðildarviðræðum. Alexandra Cas Granje, sviðsstjóri stækkunarskrifstofu framkvæmdastjórnar ESB, segir að vinnan muni ávallt nýtast ákveði Ísland að fresta viðræðum og hefja þær svo aftur síðar. Það hafi til dæmis sýnt sig á Möltu þar sem miklar efasemdir voru um inngöngu áður en landið varð hluti af ESB. Vinnan nýtist líka við að kynna Íslendingum þann hluta löggjafar ESB sem ekki er hluti af Evrópska efnahagssvæðinu.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Innlent »

Þóra Arnórsdóttir, forsetaframbjóðandi.

„Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“

Í gær, 23:05 „Nú eru fimm vikur til kosninga og skoðanakannanir sýna áfram sömu myndina í grófum dráttum, þótt fylgið hafi dalað aðeins í nýjustu könnun Fréttablaðsins. Þá er ekkert annað að gera en bretta upp ermar og tvíeflast í starfinu framundan. Munum samt að vera jákvæð og hafa gaman af þessu.“ Meira »

Íslenska lagið fékk 46 stig

Í gær, 22:33 Ísland fékk samtals 46 stig í Evróvisjónkeppninni í kvöld og endaði í 19. sæti. Flest stig fékk íslenska framlagið, sem flutt var af þeim Jónsa og Gretu Salóme, frá Finnum eða sjö stig en næstmest frá Dönum, Ungverjum og Eistum eða sex stig. Meira »

Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi

Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi.
Í gær, 22:50 „Mér er spurn, hvenær eru mannréttindi eða mannréttindabrot hluti af okkar lífi ef ekki þegar kallað er á athygli okkar og aðstoð með svo átakanlegum hætti?“ spyr Andrea J. Ólafsdóttir, forsetaframbjóðandi, á heimasíðu sinni í dag. Meira »

Manni bjargað úr Ölfusá

Frá Selfossi. Úr myndasafni.
Í gær, 22:14 Lögreglan á Selfossi kom karlmanni til bjargar um klukkan níu í kvöld eftir að hann hafði fallið í Ölfusá rétt ofan við Selfosskirkju. Að sögn lögreglunnar var hún að svipast um eftir manninum þegar sjúkraliðsmaður kom auga á hann þar sem hann hékk á klettasnös. Meira »

Fyrstur karla til að lesa stigin

Matthías Matthíasson, söngvari.
Í gær, 21:30 Atkvæðagreiðslunni í Evróvísjón er nú lokið og stigagjöfin er nú hafin. Það er Matthías Matthíasson, söngvari, sem mun mun lesa stigin frá Íslandi en þetta er í fyrsta sinn sem karlmaður gerir það fyrir hönd Íslendinga. Meira »

Svíar unnu Evróvisjón 2012

Í gær, 22:17 Svíþjóð er sigurvegari Evróvisjón 2012 en sænska framlagið fékk samtals 372 stig og var sigurinn mjög afgerandi. Svíar héldu forystunni nánast allan tímann sem stigagjöfin fór fram. Meira »

Fyrstu stigin frá Slóvenum

Í gær, 22:01 Fyrstu stigin sem Ísland hlýtur í Evróvísjónkeppninni í kvöld komu frá Slóvenum en þeir gáfu íslenska framlaginu fjögur stig. Slóvenía er 19. landið til þess að gefa stig. Meira »

Versló brautskráir 311 nemendur

Frá brautskráningu Verzlunarskóla Íslands í dag.
Í gær, 21:14 Verzlunarskóla Íslands var slitið í 107. sinn í dag en 311 nemendur brautskráðust að þessu sinni með stúdentspróf, 182 stúlkur og 129 piltar. Þar af komu 301 nemandi úr dagskólanum og 10 úr fjarnámi. Meira »

„Mannréttindi varða okkur öll“

Í gær, 20:47 „Góða skemmtun í kvöld kæru Íslendingar. Við gerum okkar allra besta til að skila okkar sem best á sviðinu og því sem við höfum unnið að sleitulaust síðan í febrúar,“ sagði Gréta Salóme á Facebook-síðu sinni í dag. Meira »

Sexfaldur pottur næst

Í gær, 19:29 Enginn hlaut fyrsta vinninginn í Lottói kvöldsins en fjórir hluti annan vinning og fær hver vinningshafi 298.370 krónur í sinn hlut. Tölur kvöldsins voru að þessu sinni 2, 10, 11, 14 og 31 og bónustalan 34. Meira »

Stóðu sig vel á sviðinu

Í gær, 19:40 Flutningur íslenska framlagsins í Evróvisjónkeppninni tókst mjög vel á sviðinu í Kristalshöllinni í Bakú, höfuðborg Aserbaídsjan, og var þeim Jónsa og Gretu Salóme fagnað mjög af þeim fjölmörgu áhorfendum sem fylla salinn í höllinni. Meira »

545 þúsund kílómetrar að baki

Í gær, 18:57 Þátttakendur í átakinu „Hjólað í vinnuna“ hafa nú lagt að baki samtals 545.487 kílómetra samkvæmt heimasíðu átaksins en það hófst 9. maí síðastliðinn og stendur fram á næstkomandi þriðjudag 29. maí. Meira »

40 nemendur útskrifaðir á Húsavík

Stúdínan Inga Ósk Jónsdóttir með verðlaunin.
Í gær, 18:26 Það voru hlýir vorvindar, sól og blíða á Húsavík í morgun þegar 40 nemendur brautskráðust frá Framhaldsskólanum á Húsavík sem slitið var í 25. skipti. Athöfnin fór að venju fram í Húsavíkurkirkju en 24 nemendur brautskráðust með stúdentspróf og 17 með próf af starfsnámsbrautum. Meira »

Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu

Ligita Solomenceva sem lögreglan leitar að.
Í gær, 17:44 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ligitu Solomenceva, 42 ára konu frá Lettlandi. Fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni að síðast hafi verið vitað um ferðir hennar við Meðalfellsvatn sunnudaginn 13. maí síðastliðinn. Meira »

Fjórar finnskar þotur til Íslands

F-18 Hornet orrustuþota.
Í gær, 16:29 Finnar áforma að taka að sér loftrýmisgæslu á Íslandi í þrjár vikur árið 2015 og senda hingað til lands í því skyni fjórar F-18 Hornet orrustuþotur og 50 manna starfslið. Þoturnar verða sendar hingað til lands í tengslum við norrænt samstarf um loftrýmisgæslu við Ísland. Meira »

Hera, Eyfi og Helga spá í spilin

Hera Björk - Evróvisjónfari ´10
Í gær, 17:59 Það hefur eflaust ekki farið fram hjá mörgum að Ísland keppir í aðalkeppni Evróvisjón 2012 í kvöld. Mbl.is hafði samband við nokkrar valinkunnar Júróvisjónhetjur og kannaði hvernig þeim litist á. Meira »

Framboð auglýst innan viku

Í gær, 17:06 Ráðuneyti innanríkismála mun innan viku ljúka yfirferð framlagðra gagna þeirra einstaklinga sem boðið hafa sig fram til embættis forseta Íslands og í kjölfar þess birta auglýsingu um það hverjir verða í framboði í forsetakosningunum sem fram fara 30. júní næstkomandi. Meira »

Kæru vegna sameiningar hafnað

Úr myndasafni.
Í gær, 15:41 Innanríkisráðuneytið hefur hafnað kröfu sem því barst í júní á síðasta ári um að sameiginlegar skólastofnana í Reykjavík yrði dæmdar ólögmætar en úrskurðurinn barst kærandanum, Sigríði Jónsdóttir, í gær. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
2-3 herb.íbúð óskast til kaups
Óska eftir 2-3h. íbúð á Reykjavíkur sv. vinsamlegast sendið staðs. og verð á net...
PING G2
Ping G2 járn, 4HL-5HL-6-7-8-9-W-S-L og 60°(ekki Ping) Ping Trailblazer kerrupok...
TIL LEIGU
Til leigu nýinnréttuð skrifstofuherbergi í 104 Rvk. Securitas-öryggiskerfi. Tölv...
RÝMINGARSALA Á VÖRUBÍLADEKKJUM
Rýmingarsala á vörubíladekkjum 315/80 R 22.5 75.000 + vsk. ...
 
Samkoma - hjálpræðisherinn
Félagsstarf
Kjallarinn, fimmtudag, kl.20 Ung...
Ársfundur vina vatnajökuls

Ársfundur Vina Vatnajökuls, hollvinasamt...
Samtök atvinnulífsins
Önnur störf
LÖGFRÆÐINGUR Samtök atvinnulífsins lei...
Ársfundur byggðastofnunar 1 júní 2012
Fundir - mannfagnaðir
Ársfundur Byggðastofnunar 1. júní ...