Hrun í varpi svartbaks í Breiðafjarðareyjum

Páll í Brokey man ekki eftir því að varpið hafi …
Páll í Brokey man ekki eftir því að varpið hafi nokkurn tímann verið jafnlélegt og í sumar. . mbl.is/Gunnlaugur

Varpi fugla er við Breiðafjörð er nú lokð. Það hefur vakið athygli manna hversu lélegt svartbaksvarp hefur verið í vor. Oft eru sveiflur á milli ára, en nú hefur varpið gjörsamlega hrunið í nokkrum eyjum, þar sem mikið varp hefur verið áður fyrr og enginn veit hver ástæða þess er.

Páll Hjaltalín er fæddur og uppalinn í Brokey í mynni Hvammsfjarðar. Í Brokey hefur verið mjög mikið svartbaksvarp og hefur Páll fylgst með því í tugi ára. Hann segir að varpið nú sé það lélegasta eftir að hann fór að muna eftir sér. Hann telur að varpið sé aðeins brot af því sem hefur verið undanfarin ár.

„Ætli varpið núna hjá svartbaknum sé ekki um 10% af venjulegu varpi. Varpið sveiflast alltaf eitthvað til á milli ára og þar hefur tíðarfar og æti áhrif. Varpið datt niður fyrir 5-6 árum og hefur verið vaxandi síðan. Í fyrra var það með albesta móti. En þá gerist þetta. Ég hef enga skýringu á þessu. Í vetur hefur tíðarfarið verið gott og eins hefur verið mikið æti í Breiðafirði bæði síld og loðna. Ég trúi því ekki að fæðuskortur valdi þessu. Það er eitthvað annað sem kemur til, en hvað það er hef ég ekki svör við,“ segir Páll.

Sömu sögu er að segja frá Stagley sem er miðja vegu á milli Stykkishólms og Flateyjar. Í Stagley hefur verið mikið svartbaksvarp sem hefur verið nytjað. „Þetta er ekki neitt miðað við síðustu ár,“ segir Ásgeir Gunnar Jónsson.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert