Fjórar flugferðir felldar niður

mbl.is/Sigurður Bogi

Vegna verkfallsaðgerða Félags íslenskra atvinnuflugmanna hefur Icelandair orðið að fella niður fjjórar flugferðir á þessum sólarhring: Flug til og frá Kaupmannahöfn í nótt sem leið og flug til og frá Berlín síðdegis í dag. Alls snertir þetta um 600 farþegar í þessum ferðum.

Ástæða þess að fella þarf flugin niður eru veikinda flugmanna og veikindi flugmanna á bakvakt. Vegna verkfallsaðgerðanna er ekki um annað að ræða en að fella flugin niður, segir í tilkynningu frá Icelandair.

Algjörlega óviðunandi ástand

„Þetta er algjörlega óviðunandi ástand og við biðjum viðskiptavini innilega afsökunar á þeim óþægindum sem niðurfelling flugsins veldur. Þegar verkfallsaðgerðirnar halda áfram með þessum hætti dögum saman verður stöðugt erfiðara fyrir Icelandair að leysa úr vanda einstakra farþega, en starfsfólk okkar í þjónustuveri og á flugvöllum leggur sig allt fram við erfiðar aðstæður", segir Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair.

Tímasetning og eðli verkfallsaðgerðanna byggir á því að nú er háannatími í flugi og ferðaþjónustu og greinin mjög viðkvæm fyrir röskun. Það eru Icelandair mikil vonbrigði að til þeirra sé gripið, þrátt fyrir að Icelandair hafi boðið FÍA sambærilegar launahækkanir og aðrir í samfélaginu hafa samið um að undanförnu, þar á meðal aðrir starfshópar Icelandair, segir í tilkynningu frá Icelandair.

Nánari upplýsingar er að finna hér

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert