Fjórir aftur í kjöri um Skálholt

Skálholtskirkja.
Skálholtskirkja.

Fjórir prestar hafa skilað inn tilnefningum fyrir kjör til vígslubiskups í Skálholti, sem varð að endurtaka þar sem fyrri kosningar voru dæmdar ógildar. Umsækjendur eru hinir sömu og áður, að því undanskildu að Karl V. Matthíasson sækir ekki um að nýju.

Umsækjendurnir fjórir eru séra Agnes M. Sigurðardóttir, sóknarprestur í Bolungarvík og prófastur í Vestfjarðaprófastsdæmi, sr. Kristján Valur Ingólfsson, verkefnisstjóri helgisiða og prestur á Þingvöllum, Sigrún Óskarsdóttir, prestur í Árbæjarkirkju, og Jón Dalbú Hróbjartsson, prófastur í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra.

Ekki náðist í Steinunni Arnþrúði Björnsdóttur, upplýsingafulltrúa Biskupsstofu, en á vef Bæjarins besta kemur fram að kjörgögn fyrir kosninguna hafi verið send út í dag en frestur til að skila inn atkvæðum rennur út 28. júlí nk.

Sigrún Óskarsdóttir hlaut flest atkvæði í kosningunum sem fóru fram í mars, en eitt atkvæði skildi á milli Agnesar og Jóns Dalbú í fyrri umferð kosningarinnar. Séra Agnes kærði kosninguna þegar í ljós kom að tvö atkvæði voru póststimpluð þremur dögum eftir að auglýstur skilafresti rann út. Í framhaldinu úrskurðaði yfirkjörstjórn kosninguna ógilda og kjörstjórn Þjóðkirkjunnar sagði af sér.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert