Grunaður um að kynferðisbrot gegn börnum

Héraðsdómur Suðurlands hefur úrskurðað karlmann á fimmtugsaldri í mánaðar gæsluvarðhald vegna gruns um að hann hafi beitt stjúpdóttur sína kynferðislegu ofbeldi á árunum 2009 og 2010 þegar stúlkan var 8 og 9 ára. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu.

Blaðið segir, að í fórum mannsins hafi fundist fjöldi ljósmynda og hreyfimynda sem hann hafði meðal annars tekið af sér og barninu.

Blaðið segir, að  ung kona hafi einnig kært manninn fyrir að hafa áreitt sig kynferðislega fyrir átta árum, þegar hún var ung stúlka. Maðurinn er búsettur í Vestmannaeyjum, að sögn Fréttablaðsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert