Réðst á ísbjörn á Laugavegi

mbl.is/

Ölvaður maður á Laugavegi braut rúðu á veitingahúsinu Monte Carlo í kvöld, sparkaði höfuð af ísbirni þar skammt hjá og veittist því næst að gangandi vegfaranda sem snérist fimlega til varnar þar til lögregla kom. Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Sá ölvaði gistir nú fangageymslur þar til víman rennur af honum og getur gert grein fyrir háttarlagi sínu. Að öðru leyti hefur kvöldið verið rólegt í höfuðborginni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert