Ólögmæt ríkisaðstoð
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur komist að þeirri niðurstöðu að að aðstoðarkerfi fasteignaveðlána Íbúðalánasjóðs feli í sér ólögmæta ríkisaðstoð til fjármálastofnana á Íslandi.
ESA segir að kerfið sé ekki í samræmi við ákvæði EES-samningsins. Niðurstaða ESA lá fyrir í dag.
Fram kemur að vegna mikilla raskana á alþjóðlegum fjármálamörkuðum hafi íslenskar fjármálastofnanir staðið frammi fyrir lausafjárskorti. Til að mæta þessum vanda hafi íslensk stjórnvöld meðal annars ákveðið að heimila Íbúðalánasjóði að kaupa fasteignaveðlán af fjármálastofnunum.
Segir að aðstoðarkerfi fasteignaveðlána feli í sér varanleg skipti á eignum þar sem fjármálastofnanir taki á móti skuldabréfum Íbúðalánasjóðs í skiptum fyrir fasteignaveðlán sem eru yfirfærð til sjóðsins.
Við þær aðstæður sem hafi verið á fjármálamörkuðum í kjölfar fjármálakreppunar sé ólíklegt að einkafjárfestir hefði tekið þátt í sambærilegum eignaskiptum.
Niðurstaða ESA sé því sú að aðstoðarkerfi fasteignaveðlána gæti þar af leiðandi falið í sér ríkisaðstoð til fjármálastofnana. Að auki fellur aðstoðarkerfið ekki að leiðbeinandi reglum um ríkisaðstoð í tengslum við virðisrýrðar eignir, sem stofnunin innleiddi í kjölfar fjármálahrunsins.
„Vegna þessa fer ESA fram á að íslensk yfirvöld leggi niður aðstoðarkerfi fasteignaveðlána án tafar og geri nauðsynlegar ráðstafanir til að endurheimta ósamrýmanlega aðstoð eigi síðar en í lok október 2011.
Einstaka styrkir sem hafa verið veittir vegna aðstoðarkerfisins geta
hinsvegar samræmst áskilnaði EES samningsins uppfyllt þeir skilyrði sem
sett eru í leiðbeinandi reglum í tengslum við virðisrýrðar eignir og
þurfa þar af leiðandi ekki að vera endurheimtir. Í slíkum tilvikum þurfa
íslensk stjórnvöld að leggja fram gögn sem sýna fram á að einstaka
styrkir sem veittir hafa verið samkvæmt aðstoðarkerfinu hafi verið
samrýmanlegir reglum um ríkisaðstoð,“ segir í tilkynningu frá ESA.
Bloggað um fréttina
-
Einar Guðjónsson Lögbundnar brunatryggingar ríkisaðstoð. -
Ómar Geirsson Hvernig er þetta eiginlega með ESA??? -
Kristinn Karl Brynjarsson Lögfræðiráðgjöf Árna Páls að skila sér. -
Ásdís Sigurðardóttir Erum við alltaf að gera vitleysur??
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 29. júní 2011, Innlent Gætu þurft að skila fé frá ríkinu
- Miðvikudagur, 23. nóvember 2011, Innlent Rannsaka ríkisaðstoð til fjárfestingabanka
- Mánudagur, 18. júlí 2011, Innlent ESA vill breytingar á Íbúðalánasjóði
- Miðvikudagur, 8. september 2010, Innlent ESA rannsakar bankana
- Miðvikudagur, 14. desember 2011, Innlent Ekki ríkisaðstoð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































