172 fyrirtæki í þrot

mbl.is/Ómar

Í maí 2011 voru 172 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 96 fyrirtæki í maí 2010, sem jafngildir um 79% fjölgun á milli ára. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest gjaldþrot í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Fyrstu 5 mánuði ársins 2011 er fjöldi gjaldþrota 699 sem er um 53% aukning frá sama tímabili árið 2010 þegar 456 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta, að því er fram kemur á vef Hagstofu Íslands.

Í maí 2011 voru skráð 108 ný einkahlutafélög (ehf) samanborið við 161 einkahlutafélög í maí 2010, sem jafngildir um 33% fækkun á milli ára. Eftir bálkum atvinnugreina voru flest einkahlutafélög skráð í fasteignaviðskipti. Heildarfjöldi nýskráðra einkahlutafélaga er 696 fyrstu 5 mánuði ársins og hefur nýskráningum fækkað um 7% frá sama tímabili árið 2010 þegar 749 ný einkahlutafélög voru skráð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert