Hannes fær ekki bætur

Hannes Smárason.
Hannes Smárason.

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag íslenska ríkið af skaðabótakröfu Hannesar Smárasonar, kaupsýslumanns.

Hannes krafðist þess að fá greiddar skaðabætur vegna kyrrsetningar eigna á síðasta ári. Kyrrsetningin  var felld úr gildi eftir að Hæstaréttur dæmdi  kyrrsetningu eigna Skarphéðins Berg Steinarssonar ógilda.

Hannes krafðist þess að fá 2,5 milljónir í skaðabætur vegna fjártjóns og 2,5 milljónir í miskabætur eða samtals 5 milljónir krónaÞá.

Héraðsdómur segir, að  Hannes hafi ekki sýnt fram á að hann hafi orðið fyrir fjártjóni vegna kyrrsetningarinnar. 

Þá sæti Hannes rannsókn skattrannsóknastjóra vegna meintra fjársvika Stoða hf. þar sem Hannes var forstjóri. Segist dómurinn ekki fallast á, að í  beiðni um kyrrsetningu á eignum Hannesar hafi falist brot á skaðabótareglum eða í því hafi falist ólögmæt meingerð gegn persónu hans heldur hafi, þrátt fyrir niðurstöðu kyrrsetningarmálsins, verið um að ræða eðlilegan þátt í þeirri rannsókn sem enn standi yfir og sé ekki lokið.

Skarphéðinn Berg krafðist einnig skaðabóta, 10 milljóna króna, vegna kyrrsetningar eigna hans á síðasta ári í tengslum við rannsókn skattrannsóknarstjóra. Héraðsdómur hafnaði skaðabótakröfunni á sömu forsendum og kröfu Hannesar var hafnað en Hæstiréttur hefur ekki fjallað um málið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert