Feðgar sem björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar hafa leitað að nú í kvöld eru fundnir.
Mennirnir fundust nú rétt fyrir klukkan átta í kvöld. Mennirnir, sem ætluðu í göngu í Klukkuskarði, virðast hafa villst á leið sinni. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Selfossi fundust þeir í norðanverðum Hrútadal undir Hrútatindi. Staðurinn er í 3 km loftlínu frá bíl feðganna, sem fannst fyrr í dag, en ekki er hægt að fara þá leið enda torfært landslag.
Fyrr í dag hafði bíll feðgana fundist undir Klukkutindum. Björgunarsveitir, leitarhundar og þyrla Landshelgisgæslunnar tóku þátt í leitinni.