Óheftur aðgangur að netinu verði tryggður
Meðal þeirra tillagna, sem finna mál í drögum stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá Íslands, er að stjórnvöld skuli tryggja aðstæður til opinnar og upplýstrar umræðu. Þá skuli tryggja óheftan aðgang að netinu og upplýsingatækni.
Stjórnlagaráð lagði í dag fram fyrstu drög að nýrri stjórnarskrá á grundvelli svokallaðs áfangaskjals. Framundan eru umræður um breytingartillögur á ráðsfundum um drögin og má gera ráð fyrir að frumvarpið taki nokkrum breytingum við þær. Stefnt er að því að skila verkinu til forseta Alþingis 29. júlí.
Meðal tillagnanna er að öllum sé frjálst að safna og miðla upplýsingum. Upplýsingar og gögn í fórum stjórnvalda skuli vera tiltæk án undandráttar og tryggja beri með lögum aðgang almennings að öllum gögnum sem opinberir aðilar safna eða standa straum af.
Vernd uppljóstrara
Þá skal tryggja með lögum frelsi fjölmiðla, ritstjórnarlegt sjálfstæði þeirra og gegnsætt eignarhald og sömuleiðis vernd blaðamanna, heimildarmanna og uppljóstrara. Óheimilt verði að rjúfa nafnleynd án samþykkis þess sem veiti upplýsingar nema við meðferð sakamáls og samkvæmt dómsúrskurði.
Ævarandi eign þjóðarinnar
Sérstakt ákvæði er í skjalinu um eignarhald þjóðarinnar á náttúruauðlindum. Hljóðar það svo:
„Auðlindir í náttúru Íslands, sem ekki eru í einkaeigu, eru sameiginleg og ævarandi eign þjóðarinnar. Enginn getur fengið þær, eða réttindi tengd þeim, til eignar eða varanlegra afnota og því má aldrei selja þær eða veðsetja.
Til auðlinda í þjóðareign teljast náttúrugæði, svo sem nytjastofnar, aðrar auðlindir hafs og hafsbotns innan íslenskrar lögsögu, vatns- og virkjunarréttindi og jarðhita- og námaréttindi. Með lögum má kveða á um þjóðareign á auðlindum undir tiltekinni dýpt frá yfirborði jarðar.
Við nýtingu auðlindanna skal hafa sjálfbæra þróun og almannahag að leiðarljósi.
Stjórnvöld bera, ásamt þeim sem nýta auðlindirnar, ábyrgð á vernd
þeirra. Stjórnvöld geta á grundvelli laga veitt leyfi til afnota eða
hagnýtingar þeirra, gegn fullu gjaldi og til tiltekins hóflegs tíma í
senn. Slík leyfi leiða aldrei til eignarréttar eða óafturkallanlegs
forræðis yfir auðlindunum."
Bloggað um fréttina
-
S i g u r ð u r Sigurðarson Sköllóttur eða hárfatlaður einstaklingur ... -
Ómar Ragnarsson Nútímaleg stjórnarskrá en þó sígild.
Innlent »
- Ungu Evrópu dreift til ungs fólks
- Bryan Ferry lendir
- Evróvisjón með viðbættu tísti
- Bjart og hlýtt fyrir austan - 21 gráða mældist á Hallormsstað
- Hvítasunnuhelgin fer vel af stað
- Segir LA hafa fengið tekjurnar
- Þúsund hesta hópreið á Selfossi
- Þvert á stefnu ríkisstjórnarinnar
- Þarf meiri tíma til að finna lausn
- Bangsi fer með í Græna herbergið
- Alvarlegar tannskemmdir hrjá hesta
- Nefnd fer yfir vegi og skipulag
- Lét dólgslega og stökk í sjóinn
- Meiri útgjöld í hreinsun á veggjakroti
- Störfum í bönkum fækkað um 2.000
- Kostnaður við komu 4 milljónir
- Flugfarþegi lak plötu á netið
- Athugasemdir við Rússa
- Lántakendur varaðir við
- Maíhiti gæti orðið yfir meðallagi
- Léttskýjað á Norðaustur- og Austurlandi
- Húsbíll fauk af vegi
- Ólafur mælist með mest fylgi
- Yfirheyrslur héldu áfram í dag
- Fíkniefni fundust í kjallaraíbúð
- Bátur fauk á annan bát
- Harður árekstur í Engidal
- 33 brotlegir ökumenn myndaðir
- Fylgjast þarf með Krýsuvík
- Hnífjafnt á milli Ólafs og Þóru
- Harma óvæginn fréttaflutning
- Farinn frá Landsbankanum
- Nýr starfsvettvangur leggst vel í Geir
- Þjófar í gæsluvarðhald
- Átak gegn ölvunarakstri
- Betur má ef duga skal
- Framsetning flugmiðaverðs óskýr
- Kærði undirskriftafölsun
- Meta lögmæti samningsins
- Auðveldar fólki að sækja um búsetu
- Rætt um að kaupa notaðar þyrlur
- Sjálfstæðismenn ósammála um göngin
- Bekkir úr níu skólum unnu til verðlauna
-
Hjólin fá að snúast að nýju
- „Hvatning til okkar beggja“
- Flaggað í hálfa stöng í Súðavík
- Fengu 9,8 í meðaleinkunn
- Geir í nýtt starf
- Mikið um reiðhjólaþjófnað
- Ölvaður og réttindalaus
- Tekinn á 134 km hraða
Svipaðar fréttir
- Þriðjudagur, 28. júní 2011, Innlent Mannréttindakaflinn afgreiddur
- Þriðjudagur, 27. mars 2012, Innlent Ekki spurt beint um tillöguna
- Föstudagur, 29. júlí 2011, Innlent Stjórnarskrá verði breytt umtalsvert
- Þriðjudagur, 19. júlí 2011, Innlent Róttæk drög að stjórnarskrá
- Þriðjudagur, 20. mars 2012, Innlent Kosið verði um tillögur Stjórnlagaráðs í sumar
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
-
„Hefur tekið tíma að trekkja traktorinn í gang“




































