Sendi samúðarkveðju til Noregs

Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson.
Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson. mbl.is/Ómar

Karl Sigurbjörnsson, biskup Íslands, sendi í dag samúðarkveðjur til Ole Christian Kvarme, biskups í Osló, og til Dag Wernø Holter, sendiherra Noregs á Íslandi, að því er fram kemur á vef Þjóðkirkjunnar.

„Hugur okkar allra og fyrirbæn er hjá norsku þjóðinni andspænis þessum skelfilegu tíðindum sem bárust í dag,“ segir Karl biskup. „Við getum bara ímyndað okkur þann óhugnað, ótta og öryggisleysi sem grípur um sig augliti til auglitis við slík grimmdarverk. Guð blessi þau sem þjást og líða og gefi styrk og kraft þeim sem hjálpa, líkna og hugga. Við munum minnast þeirra í bænum okkar.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert