Framseldur til Póllands

Hæstiréttur
Hæstiréttur mbl.is/Hjörtur

Hæstiréttur hefur staðfest ákvörðun innanríkisráðuneytisins um að Pólverji, sem hlotið hefur dóma í heimalandi sínu verði framseldur þangað. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður fellt ákvörðun ráðherra úr gildi.

Fram kemur í dómi Hæstaréttar, að maðurinn hafi fengið þrjá dóma fyrir líkamsárásir og einn fyrir hylmingu. Samtals var hann dæmdur til 4½ árs fangelsisrefsingar.

Fram kemur að maðurinn eigi barn með íslenskri konu og hafi tengst henni og þremur börnum hennar af fyrra sambandi fjölskylduböndum. Þá hafi hann dvalið á Íslandi frá miðju ári 2006, stundað atvinnu og ekki gerst brotlegur við refsilög.

Héraðsdómur taldi að ekki ætti að fallast á framsalið af mannúðarástæðum. Hæstiréttur segir hins vegar, að mat hafi verið lagt á þetta af hálfu ráðuneytisins þar sem niðurstaðan var önnur og verði ekki annað séð en að það mat hafi verið framkvæmt með réttum og málefnalegum hætti. Það mat verði ekki endurskoðað í máli þessu.

Segir Hæstiréttur, að manninum hlyti að vera ljóst, að til þess kynni að koma að pólsk yfirvöld krefðust framsals hans til þess að fullnusta refsingu þá sem honum hafði verið dæmd vegna hinna alvarlegu brota sem hann var dæmdur fyrir. Dráttur á kröfu um framsal hafi ekki áhrif á niðurstöðu málsins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert