Lögreglan í Borgarfirði og Dölum stöðvaði í gærkvöldi för rúmlega þrítugs ökumanns og er hann talinn hafa verið undir áhrifum fíkniefna. Í bíl hans fundust haglaskot en viðkomandi er ekki með byssuleyfi.
Einnig fannst landaflaska í bílnum. Við leit á heimili hans í Búðardal fannst óskráð haglabyssa sem hann kvaðst eiga, ásamt nokkrum tugum haglaskota. Lagði lögreglan hald á haglabyssuna og skotfærin. Talið er að byssunni hafi verið stolið í innbroti í heimahús á höfuðborgarsvæðinu fyrir nokkrum árum síðan. Að lokinni skýrslutöku af manninum á lögreglustöðinni í Búðardal var honum sleppt.