Víðines ekki inni í myndinni

Ögmundur Jónasson
Ögmundur Jónasson mbl.is/Eggert Jóhannesson

Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, segir að enginn ríkisstjórnarfundur hafi verið haldinn í gær og því hafi ekki verið rætt um Víðines sem mögulegt fangelsi þá líkt og Fréttablaðið heldur fram í frétt í dag. Víðines hafi verið nefnt á sínum tíma líkt og fjöldi annarra staða en þeir slegnir út af borðinu vegna mikilla breytinga sem þyrfti að fara í. Þetta kemur fram á vef Ögmundar í dag.

„Fréttablaðið vil ég upplýsa um eftirfarandi: Rætt hefur verið um að breyta í þessu skyni húsnæði á Vífilstöðum, í Arnarholti, í Víðinesi, í Reykjanesbæ, í héraðsskólum víðs vegar um landið, vinnubúðir á Reyðarfirði hafa verið nefndar og svo framvegis. Niðurstaðan hefur jafnan orðið sú eftir skoðun á málinu að þetta sé óhagkvæmt og muni reynast dýrara þegar upp er staðið, a) vegna nauðsynlegra og umfangsmikilla breytinga á húsnæðinu, b) vegna rekstrarkostnaðar sem er það sem máli skiptir til framtíðar horft.  
Ný fangelsisbygging, sem þegar er að grunni til úthugsuð (grunnhugmyndin er komin á blað og bíður útfærslu arkitekta), er hugsuð með þetta í huga, ákjósanlegar aðstæður fyrir starfsmenn og fanga og sem minnstan rekstrarkostnað.

Síðan er náttúrlega einn veikleiki í frétt Fréttablaðsins: Enginn ríkisstjórnarfundur var haldinn í gær og hefur þetta mál ekkert verið rætt á þeim vettvangi frá því ríkisstjórnin kom síðast saman að morgni dags, þriðjudaginn 26. júlí.
Þannig að mér sýnist Fréttablaðið hafa misst eitthvað úr, bæði úr umræðunni og dagatalinu," skrifar Ögmundur á vef sinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert