Eldri borgarar taka út peninga
Íbúðir fyrir eldri borgara mbl.is/RAX
Það hefur færst í vöxt að eldri borgarar taki út fé af bankareikningum og leggi inn á bankahólf. Ástæðan er skerðing bóta vegna vaxtatekna, hærri fjármagnstekjuskattur og neikvæðir raunvextir af innistæðum vegna verðbólgu, að sögn Jónu Valgerðar Kristinsdóttur, formanns Félags eldri borgara.
Eins og fram kom á fréttavef Morgunblaðsins í gær eru uppi hugmyndir innan Vinstri grænna um að hækka fjármagnstekjuskatt í 30%.
Vextir langt undir verðbólgu
Jóna Valgerður varar eindregið við slíkri hækkun en skatturinn var sem kunnugt er 10% fyrir fjármálahrunið.
„Það væri fáranlegt að hækka fjármagnstekjuskattinn. Það er þegar búið að tvöfalda hann. Þá hafa raunvextir verið neikvæðir. Ég veit um eldri borgara sem hafa tekið fé sitt út af bankabókum og lagt inn á bankahólf. Fólk fær 2,2-2,5% vexti. Til samanburðar er verðbólgan nú um 5%.
Svo eru verðbætur líka skattlagðar. Ég hef tekið þátt í starfi endurskoðunarnefndar um almannatryggingar og þekki því vel til þessara mála. Fjármagnstekjuskatturinn á ekki að reiknast út frá vaxtatekjum að fullu, enda eru vextir í mörgum tilfellum neikvæðir.“
Verðbólgan þýðir neikvæða raunvexti
En hvaða áhrif hefði hækkun fjármagnstekjuskatts í 30% á hag eldri borgara sem hafa lagt fyrir fé á lífsleiðinni?
„Það hefði gífurleg áhrif. Vaxtatekjur eru reiknaðar að fullu sem viðbótartekjur og koma þar með til skerðingar á bótum almannatrygginga.Tekjurnar draga því úr þeim bótum sem fólk á rétt á jafnvel þótt raunvextir séu neikvæðir.
Ég hefði ætlað að ríkisstjórnin legði metnað sinn í að stuðla að auknum sparnaði. Sú hækkun á fjármagnstekjuskatti sem þarna er rætt um myndi draga úr áhuga fólks á sparnaði. Það myndi jafnframt færast í vöxt að fólk tæki út fé og setti inn á bankahólf. Margir eldri borgarar horfa þegar fram á rýrnun sparifjár síns vegna verðbólgunnar,“ segir Jóna Valgerður.
Bloggað um fréttina
-
Axel Jóhann Axelsson Lýsandi dæmi um skattahækkanabrjálæðið -
-
-
Haraldur Haraldsson Eldri borgarar taka út peninga/er það nema von með neikvæða ... -
Helga Auðunsdóttir Þegar stjórnsemin og skattar verða of miklir -
Magnús Vignir Árnason Undarlegir útreikningar -
Lúðvík Júlíusson Fjármagnstekjur og lífeyrir
Innlent »
- Stöðvaður eftir ofsaakstur
- Alsírsku drengirnir áfrýja
- Listflug við Reykjavíkurflugvöll
- Ákærður fyrir að stinga mann
- Landsbjörg leitar enn að Ligitu
- Klára kvótamálin í vikunni
- Hreint hjarta besta myndin
- Mætti innbrotsþjófum í forstofunni
- Veðurblíða víða um land
- Ölvaður ökumaður reyndi að stinga af
- Kosningamiðstöð Þóru opnuð
- Ferry heillaði í Hörpu
Sunnudagur, 27.5.2012
-
Peningar ekki rót alls ills
- Fyrst til að verða meistari í bílasmíði
- Átta umferðarslys á tíu dögum í og við Búðardal
- Þriðja árið í röð í 19. - 20. sæti
- Flestir hlynntir staðgöngumæðrun
- Catalina er í fullu fjöri
- Skjaldborg í skjóli fjalla
- Fisvél brotlenti við Klaustur
- Náttúru, sögu og nytjum gerð skil
- Þóra opnar skrifstofu
- Veðrið leikur við landsmenn
- Lettneska konan enn ófundin
- Við akstur undir áhrifum kannabis
- Gleymdist að slökkva á eldavélinni
- Fjölmennasti hópurinn frá upphafi
- Voru frelsinu fegnar
- Margir sóla sig í sundi í dag
- „Svona sending er ný reynsla“
- „Ég reyni að lifa lífinu til fulls“
- „Lögmál útrásarinnar lifa enn góðu lífi“
- Par villtist á leiðinni í Þórsmörk
- 65 brautskráðir á Sauðárkróki
- „Þú ert númer 44 í röðinni“
- Vatn flæddi yfir veginn
- Bilun í netkerfi Símans
- Krefjast þess að bankinn endurskoði áform sín
- Vissu ekki hver hefði ekið
Laugardagur, 26.5.2012
- „Ekkert annað að gera en bretta upp ermar“
- Spyr hvenær rétti tíminn sé fyrir mannréttindi
- Íslenska lagið fékk 46 stig
- Svíar unnu Evróvisjón 2012
- Manni bjargað úr Ölfusá
- Fyrstu stigin frá Slóvenum
- Fyrstur karla til að lesa stigin
- Versló brautskráir 311 nemendur
- „Mannréttindi varða okkur öll“
- Stóðu sig vel á sviðinu
- Sexfaldur pottur næst
- 545 þúsund kílómetrar að baki
- 40 nemendur útskrifaðir á Húsavík
- Hera, Eyfi og Helga spá í spilin
- Lögreglan lýsir eftir lettneskri konu
- Framboð auglýst innan viku
- Fjórar finnskar þotur til Íslands
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 7. október 2010, Innlent Með peninga í bankahólfi
- Föstudagur, 30. júlí 2010, Innlent Skerðing lífeyris vegna verðbóta er keðjuverkandi
- Miðvikudagur, 13. október 2010, Innlent Áhyggjur af stöðu velferðarkerfisins
-
Annan segir morðin hryllileg
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú


































